Öryggisvesti
Vara hættir
Við höfum tekið ákvörðun að hætta með öryggisvestin okkar, vegna breytinga hjá okkur.
Þess vegna ætlum við að losa okkur við öll vestin og bjóða ykkur þau á tilboðsverði
ATH það fylgir ekki hylki með vestunum
Eigum nokkur hylki sem seljast sér
Öryggisvestin eru vörn fyrir hestamenn ef þeir detta af baki. Vestið ver hryggjaliði, mænu, háls,rifbein, mjaðmagrind og mjóbak. Notkun á öryggisvesti getur komið í veg fyrir alvarleg meiðsli.
Vestið er með rennilás og innbyggðum loftpúða. Vestið er með gashylki sem springur út ef dottið er af baki.
Hægt er að skipta um gashylki ef það springur út, vestið heldur lögun sinni. Loftið lekur sjálfkrafa úr vestinu eftir smá stund
Vestið fer yfir annan klæðnað.
Vestin eru vatnsheld. Ef þrífa þarf vesti er best að strjúka af því með blautri tusku, ekki setja það í þvottavél.
Skoðið stærðartöflu - 2XS og 3XS eru barnastærðir – Börn þurfa að hafa náð 35 kg til þess að mega nota vestin
Vestin eru með CE vottun
- skoðið myndband á síðu hvernig gashylki er fest í vestið
Mikilvægt er að yfirfara gashylki einu sinni á ári ef þau hafa ekki sprungið út
Best er að hafa samband á emaili ef þið viljið frekari upplýsingar og fá að máta
email: ghlvorur@ghlvorur.is


