Ferðasegulkubbar
Ferðasegulkubbasett í álboxi – 32 stk.
Skemmtilegt og handhægt segulkubbasett sem hentar vel í ferðalagið, á veitingastaðinn eða í heimsókn. Kubbar og form festast saman með seglum og bjóða upp á fjölbreytta byggingarleiki þar sem börn geta skapað kastala, hús, turna og ýmis ævintýraform.
Settið kemur í álboxi sem auðveldar geymslu og heldur öllum hlutunum saman.
- 32 segulkubbar og fylgihlutir
- Kemur í álboxi
- Auðvelt að taka með í ferðalagið
- Örvar sköpunargáfu, rýmisgreind og fínhreyfingar
- Hentar börnum 3 ára og eldri
- Fæst í tvennslags litaútfærslum






